hvert viltu komast...
klukkan er 13:46


Fréttir
Borðaklipping á Hlemmi

Nýtt leiðakerfi Strætó tekið í notkun

25.7.2005

Markmiðið er að efla almenningssamgöngur þannig að þær verði raunhæfur valkostur og fleiri taki strætó. Gjaldskrá Strætó breytist ekki vegna leiðakerfisins en hún hefur verið óbreytt frá 2003.

Í nýja leiðakerfinu er sérstaklega hugað að aukinni ferðatíðni þegar flestir þurfa að komast leiðar sinnar. Vagnar á stofnleiðum, greiðustu akstursleiðum, munu aka á allt að 10 mínútna fresti á álagstímum. Ferðatími styttist og skiptingum fækkar.

Góð reynsla er af stofnleiðakerfum í almenningssamgöngum erlendis þar sem notkun strætisvagna hefur aukist umtalsvert. Óskir notenda eru hins vegar mismunandi og því aldrei hægt að hanna leiðakerfi sem öllum líkar. Eðlilegt markmið er leiðakerfi sem hentar sem flestum og því var lögð rík áhersla á samráð við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á kynningarfundum í aðildarsveitarfélögum Strætó bs. komu fram margar gagnlegar tillögur sem nýttust við gerð leiðakerfisins en það er hannað á faglegum grundvelli með þátttöku sérfræðinga frá VSÓ ráðgjöf og sænskra sérfræðinga.

Sex stofnleiðir flytja fólk milli fjölmennustu íbúðasvæðanna og fjölmennustu atvinnusvæðanna. Sex almennar leiðir aka um fjölmenn hverfi og tengja þau saman. Þær fara allar um Hlemm og flestar um Lækjartorg. Vagnar á sjö hverfaleiðum aka um tiltekin hverfi eða sveitarfélög án þess að fara um miðborg Reykjavíkur.

 

Breytingar kalla á aðlögun, ekki síst af hálfu vagnstjóra Strætó bs. sem þurfa að venjast nýjum leiðum og tímatöflum. Því eru bílstjórar í umferðinni vinsamlega beðnir um að sýna þolinmæði gagnvart akstri strætisvagna fyrst eftir að nýja leiðakerfið tekur gildi.

 

„Með nýju leiðakerfi og nýju, ódýru strætókorti fyrir alla, Skólakortinu, verður strætó raunverulegur valkostur fyrir fólk sem vill komast í vinnuna, skólann, félagsstarfið, í heimsókn eða annað. Þegar hagstæð kjör á strætókortum eru borin saman við kostnað af rekstri einkabílsins dylst engum að farþegar strætó njóta umtalsverðs hagnaðar,“ sagði Björk Vilhelmsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs., á Hlemmi í dag.

 

Skólakort fyrir alla og endurbætt vefsvæði

Frá 15. ágúst verður til sölu nýtt strætókort, Sskólakortið, sem gildir til 1. júní 2006. Kortið er hugsað fyrir alla farþega en dregur nafn af  gildistímanum. Verð Skólakortsins verður 25.000 krónur. Sé kortið keypt í upphafi sölutímabils er verðið 2.631 króna fyrir mánuðinn en hvati til að kaupa kortið hverfur þegar líður á október.

 

Nýrri leiðabók hefur verið dreift til allra heimila á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar um leiðakerfið eru einnig á endurnýjuðu vefsvæði Strætó bs. á slóðinni www.bus.is eða www.strætó.is. Þar má nýta endurbættan og öflugri Ráðgjafa sér til hjálpar en hann finnur hagkvæmustu leiðina frá einum stað til annars með strætó. Einnig eru veittar upplýsingar í fríu þjónustunúmeri Strætó bs. í síma 800 1199.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica