Fyrsti dagur í nýju leiðakerfi gekk vel
Tímaáætlanir stóðust að mestu og vel gekk að aka á öllum leiðum
Strætisvagnstjórar á höfuðborgarsvæðinu eiga heiður skilinn fyrir vel unnin störf á fyrsta degi nýs leiðakerfis. Mikið hefur mætt á öllum þeim sem vinna við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Á fyrsta degi nýs leiðakerfis gekk vonum framar að aka allar leiðir, tímaáætlanir stóðust að mestu leyti og fjölmargir farþegar tóku sér far með vögnunum og kynntust þannig í raun nýja kerfinu. Það ríkti hátíðarstemning á Hlemmi fyrsta daginn í nýju leiðakerfi, sem náði hámarki með formlegri opnun kerfisins laust upp úr hádegi laugardaginn 23. júlí.
Undirbúningur hefur staðið yfir meira og minna frá því síðla árs 2001. Mikil undirbúningsvinna hefur hvílt á starfsmönnum Strætó, sem og nú eftir að kerfið hefur verið tekið í notkun. Við hvetjum farþega okkar til að sýna strætisvagnstjórum tillitssemi og þolinmæði nú á fyrstu dögunum þegar þeir tileinka sér akstursleiðir, tímatöflur og annað sem viðkemur akstri á nýjum leiðum. Við hvetjum einnig ökumenn á höfuðborgarsvæðinu til að sýna strætó tillitssemi í umferðinni, allt hjálpast þetta að til að auðvelda framkvæmdina við breytinguna á leiðakerfinu.
Við hvetjum alla til að kynna sér nýja leiðakerfið hér á strætóvefnum eða með því að hringja í gjaldfrjálst símanúmer upplýsingaþjónustu okkar, 800 1199.
Góða ferð með strætó - alla leið!
