hvert viltu komast...
klukkan er 14:37


Fréttir

Íbúum höfuðborgarsvæðisins boðið við opnun nýs leiðakerfis

21.7.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. verður tekið formlega í notkun á Hlemmi laugardaginn 23. júlí kl. 13:00. Í tilefni þess er íbúum höfuðborgarsvæðisins boðið að vera viðstaddir formlega opnun hins nýja leiðakerfis.

Formleg dagskrá hefst með því að Björk Vilhelmsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs., býður gesti velkomna og flytur ávarp, Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri kynnir nýtt leiðakerfi og Ármann Kr. Ólafsson stjórnarmaður fer yfir mikilvægi samræmds leiðakerfis fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Þá verður nýja leiðakerfið formlega tekið í notkun af borgarstjóra og bæjarstjórum aðildarsveitarfélaga Strætó bs.

Boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtun. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilar, Strætókórinn syngur vel valin lög og Helgi Björnsson söngvari tekur lagið.

Í framhaldi af formlegri dagskrá verður listaverkið „Klyfjahesturinn“ eftir Sigurjón Ólafsson afhjúpað á nýju torgi Hlemms.

Að því loknu verða ýmsar skemmtilegar uppákomur á Hlemmi. Helgi Björnsson tekur lagið, Spilabandið Runólfur slær á létta strengi, götuleikhús lífgar upp á stemninguna, andlitsmálun verður í boði og börnin fá óvæntan glaðning.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica