Nýrri leiðabók Strætó dreift til íbúa höfuðborgarsvæðisins
Nýrri leiðabók Strætó bs. hefur verið dreift með Fréttablaðinu á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu en nýtt leiðakerfi Strætó verður formlega tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Í leiðabókinni eru ítarlegar upplýsingar um allar 19 leiðir nýja leiðakerfisins með kortum og tímatöflum auk hagnýtra upplýsinga um verð, skiptistöðvar, sölustaði o.fl. Einnig er unnt að fá bókina heimsenda, hafi hún ekki skilað sér með Fréttablaðinu. Tekið er á móti beiðnum í síma 800 1199. Eftir 1. ágúst mun leiðabókin kosta 200 krónur.
Upplýsingar um nýja leiðakerfið er einnig að finna á vefsvæði Strætó bs. á slóðinni www.bus.is/www.straeto.is. Til að auðvelda farþegum að nota strætó eftir að nýja leiðakerfið tekur gildi verður hægt að hringja í frítt þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199.
