hvert viltu komast...
klukkan er 14:29


Fréttir

Nýtt leiðakerfi Strætó í notkun 23. júlí

14.7.2005

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. verður tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Með nýju leiðakerfi verður í fyrsta sinn komið á sameiginlegu, samræmdu leiðakerfi almenningssamgangna fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Markmiðið er að efla almenningssamgöngur þannig að þær verði raunhæfur valkostur og fleiri taki strætó.

Nýja leiðakerfið er einfalt og skilvirkt en það tekur mið af aðferðafræði sem þekkist víða um heim og byggist á stofnleiðum, þ.e. greiðustu og fljótförnustu akstursleiðum gatnakerfisins. Sérstaklega er hugað að þeim tíma þegar flestir þurfa að komast leiðar sinnar – á morgnana og síðdegis á virkum dögum. Strætisvagnar á stofnleiðum munu aka á allt að 10 mínútna fresti á álagstímum þannig að ferðatími flestra sem taka strætó í vinnu eða skóla styttist. Skiptingum fækkar og í heild verður þjónusta Strætó bs. betri.

Strætóleiðir nýja leiðakerfisins skiptast í þrjá flokka eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Sex stofnleiðir flytja fólk milli fjölmennustu íbúðasvæðanna og fjölmennustu atvinnusvæðanna. Sex almennar leiðir aka um fjölmenn hverfi á höfuðborgarsvæðinu og tengja þau saman. Vagnar á almennum leiðum hafa allir viðkomu á Hlemmi og flestir einnig á Lækjartorgi. Loks munu vagnar á sjö hverfaleiðum aka um tiltekin hverfi eða sveitarfélög án þess að fara um miðborg Reykjavíkur. Góð reynsla er af stofnleiðakerfum í almenningssamgöngum erlendis og hefur notkun strætisvagna aukist umtalsvert eftir að þau hafa verið tekið í notkun.

Ásgeir, Björk og Ármann.jpg

Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs, Björk Vilhelmsdóttir,
borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætó bs og Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarfulltrúi í Kópavogi og stjórnamaður Strætó bs.

Leiðakerfið er hannað á grundvelli fræðilegrar og faglegrar vinnu íslenskra og erlendra sérfræðinga en við lokagerð þess unnu sérfræðingar frá VSÓ-ráðgjöf og sænskir sérfræðingar. Tekin var hliðsjón af víðtækri könnun um ferðavenjur frá árinu 2002 og atvinnu- og búsetuskiptingu samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Strætó er þýðingarmikill hlekkur í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og því var lögð rík áhersla á samráð við íbúa svæðisins. Á kynningarfundum í sveitarfélögunum sem eiga Strætó bs. komu fram margar gagnlegar tillögur sem nýttust við hönnun leiðakerfisins.

Mikilvægt er að nýja leiðakerfið virki sem best frá fyrsta degi. Unnið hefur verið að endurskipulagningu vakta í samstarfi við starfsmenn og kynningu leiðakerfisins innan fyrirtækisins. Nýtt leiðakerfi verður hins vegar aldrei svo úr garði gert að öllum líki. Það sama gildir um núverandi leiðakerfi. Stjórn og starfsfólk Strætó bs. er hins vegar sannfært um að nýtt leiðakerfi bæti þjónustu við viðskiptavini.

Samhliða kynningu nýja leiðakerfisins verður gefin út leiðabók og henni dreift til allra heimila á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar um nýja leiðakerfið er einnig að finna á vefsvæði Strætó bs. á slóðinni www.bus.is/www.strætó.is. Til að auðvelda farþegum að nota strætó eftir að nýja leiðakerfið tekur gildi verður hægt að hringja í frítt þjónustunúmer Strætó bs. í síma 800 1199.

 

Strætó bs. er byggðasamlag í eigu sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Álftaness, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar. Auk reksturs almenningssamgangna annast fyrirtækið ferðaþjónustu fatlaðra.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica