klukkan er 09:27


Fréttir

Hlemmur tilbúinn að taka við nýja leiðakerfinu

5.7.2005

Hlemmur gegnir lykilhlutverki í nýja leiðakerfinu því þar verður aðalskiptistöð Strætó og endastöð stofnleiðanna sex. Breytingarnar sem orðið hafa í kringum Hlemm miða allar að því að greiða fyrir umferð strætisvagna og bæta aðstöðu farþega. Aðeins strætisvagnar mega nú aka Hverfisgötu ofan Snorrabrautar. Þó verður unnt að komast að lögreglustöðinni eftir akrein frá Rauðarárstíg að Snorrabraut. Á svæðinu norðan við Hlemm, milli skiptistöðvarinnar og lögreglustöðvarinnar og að Snorrabraut, verður endastöð stofnleiðanna (leiðir eitt til sex) og viðkomustaður vagna á almennum leiðum (leiðir 11-16).

Laugavegur fyrir ofan Hlemm hefur verið færður til fyrra horfs og tengdur beint við Laugaveg frá Hlemmi og niðurúr. Við þessa breytingu hefur orðið til torg fyrir ofan Hlemm. Þar hefur verið steypt undirstaða fyrir Klyfjahestinn, styttu Sigurjóns Ólafssonar sem upprunalega átti að vera á Hlemmi en endaði þess í stað á túninu við Mörkina, milli Suðurlandsbrautar og Miklubrautar.

Að sögn Þórhalls er nú unnið hörðum höndum að því að ljúka framkvæmdum innandyra. Verið er að setja upp nýja farmiðasölu og aðstöðu fyrir vagnstjóra og gæslumann. Veitingasalan verður áfram þar sem hún er nú en rými þar sem nú er farmiðasala og aðstaða fyrir gæslumann verður fjarlægt.

Mynd: Frá Hlemmi

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica