klukkan er 07:45


Fréttir

Lokun Snorrabrautar og breytingar á akstri strætisvagna

20.6.2005

Snorrabrautin verður lokuð á móts við Hringbraut frá 19. júní - 8. september 2005. Strætisvagnar sem aka vestur Hringbraut komast ekki inn á gömlu Hringbrautina meðan lokunin er í gildi.  Af þeim sökum verða því tímabundnar breytingar á akstursleiðum sem hér segir:

Leiðir 7, 110, 111, 112, 115 og 150 aka nýju Hringbrautina til vesturs.  Biðstöð hefur verið tekin í notkun nærri nýjum gatnamótum að BSÍ, þaðan er greiðfær gönguleið að Landspítalanum.  Akstur vagnanna í austurátt breytist ekki, þeir munu áfram aka eftir gömlu Hringbrautinni milli Njarðargötu og Snorrabrautar / Bústaðavegar.

Leið 140 ekur um Eiríksgötu, Barónsstíg og Laufásveg, og þaðan út á gömlu Hringbrautina. 

Á vef Reykjavíkurborgar má sjá nánari fréttir af þessum framkvæmdum hér.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica