Kynningarfundur Hlemmur+
Boðað er til opins kynningarfundar, þar sem kynntar verða framkvæmdir, bæði sem þegar eru hafnar og eru í deiglunni, á Hlemmi og í næsta umhverfi. Á svæðinu liggja m.a. fyrir tillögur að mikilli uppbyggingu íbúðarhúsnæðis við Þverholt og Einholt, atvinnuhúsnæðis við Borgartún og íbúðarhúsnæðis og skólabyggingar við Sóltún. Einnig verður nýtt umferðarskipulag á svæðinu kynnt ásamt nýju leiðarkerfi Strætó bs.
Kynningarfundurinn verður haldinn í biðstöðinni á Hlemmi, mánudaginn 20. júní nk. kl. 17:30. Fundurinn er öllum opinn. Íbúar á svæðinu og aðrir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér fyrirhugaðar framkvæmdir.
Sjá nánar frétt á vef Reykjavíkurborgar og Skipulags-og byggingarsviðs Reykjavíkur
