Fréttir
Vagnstjórar Strætó sigruðu með yfirburðum
Keppnin felst í því að leysa ýmsar akstursþrautir með sem fæstum villum á sem skemmstum tíma. Sigurlið Strætó var skipað Markúsi Sigurðssyni, Þórarni Söebech, Rögnvaldi Jónatanssyni, Steindóri Steinþórssyni, Kjartani Pálmarssyni og Braga Ragnarssyni. Bragi tók sæti í liðinu í stað Bjargar Guðmundsdóttur, sem komst í liðið eftir undankeppni en forfallaðist á laugardaginn. Markús, Þórarinn og Rögnvaldur röðuðu sér í þrjú efstu sætin í einstaklingskeppninni.
