hvert viltu komast...
klukkan er 14:08


Fréttir

Nýtt leiðakerfi Strætó í notkun 23. júlí

23.5.2005

Strætó er þýðingarmikill hlekkur í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og viðskiptavinir Strætó gera eðlilega kröfu um að nýtt leiðakerfi sé hnökralaust frá fyrsta degi. Þess vegna skiptir miklu að allur undirbúningur verði eins og best verður á kosið. Með hagsmuni viðskiptavina og starfsmanna að leiðarljósi hafa aðstandendur Strætó bs. orðið sammála um að síðari hluti júlímánaðar sé hentugasti tíminn til að taka nýtt leiðakerfi í notkun. Þá er minna álag á Strætó en á öðrum árstímum, framkvæmdir vegna nýrra biðstöðva verða að baki og endurskipulagningu vakta að fullu lokið í samráði við starfsmenn.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica