Vagnstjórar læra að draga úr mengun og kostnaði með vistakstri
Námskeiðin hafa staðið yfir undanfarnar vikur og þeim lýkur í næstu viku. Ökuskólinn í Mjódd heldur námskeiðin fyrir Strætó en bílstjórar Hagvagna hafa áður sótt sams konar námskeið með góðum árangri.
Að sögn Steindórs er á fyrsta hluta námskeiðsins rætt við vagnstjórana almennt um fagmennsku í starfi, samskipti og fleira. Því næst kemur verklegur hluti þar sem 15 kílómetra leið er ekin tvívegis. Í fyrra skiptið eins og viðkomandi vagnstjóra er eiginlegt en í seinna skiptið með leiðbeiningum um hvernig haga megi akstrinum þannig að dragi úr eldsneytiseyðslu og álagi á vagninn, einkum á bremsukerfið, án þess að draga úr ferðahraðanum. Árangurinn er mældur og munar oft miklu á eldsneytisnotkun milli umferða. Loks eiga leiðbeinendur fund með vagnstjórunum þar sem nánar er fjallað um vistakstur og farið yfir niðurstöður mælinga á akstrinum.
Steindór segir til mikils að vinna í þessu sambandi. Vagnar Strætó aka milljónir kílómetra á ári hverju og takist að minnka eldsneytisnotkun um tvo lítra á hverja hundrað má draga verulega úr kostnaði og útblæstri.
- Þetta hefur gengið mjög vel fyrir sig. Það er ánægjulegt hve vagnstjórarnir taka þessari fræðslu vel og leggja sig fram um að bæta sig, bæði í akstrinum og á öðrum sviðum, segir Steindór.