hvert viltu komast...
klukkan er 00:35


Fréttir

Hlemmur tekur stakkaskiptum vegna nýja leiðakerfisins

11.5.2005

ÞórhallurÞórhallur segir að almenn umferð verði aðeins leyfð á mjórri akrein við lögreglustöðina frá Rauðarárstíg að Snorrabraut og verður þá aðeins leyft að beygja til hægri niður Snorrabraut. Svæðið verður notað sem endastöð fyrir stofnleiðavagna, leiðir eitt til sex, en vagnar á almennu leiðunum, 11-16, fara einnig um þar og í sundinu vestan við Hlemm.

Fyrir ofan Hlemm verður Laugavegur færður til fyrra horfs þannig að hann tengist betur yfir Rauðarárstíginn. Þórhallur segir vonir standa til að þessar breytingar greiði för strætisvagna en það byggist jafnframt mikið á að umferðin upp og niður Hverfisgötu gangi greitt. Markmiðið með nýja leiðakerfinu er einmitt ekki síst að greiða för strætó svo farþegar komist hraðar á milli staða en nú.

Innandyra verður, að sögn Þórhalls, gerð sú breyting að farmiðasala og aðstaða fyrir vagnstjóra og gæslumann færist í suðausturhorn hússins. Aðkoma farþega til og frá vögnunum verður þá mun greiðari en nú.

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica