klukkan er 08:02


Fréttir

Vetnisstrætó verður með í Hjólalestinni á morgun

4.5.2005

Mikill fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig til leiks í Hjólað í vinnuna. Átakið stendur yfir dagana 2.-13. maí að báðum dögunum meðtöldum og er unnt að skrá lið til leiks fram á síðustu stundu.

Hjólreiðamenn leggja af stað frá þremur stöðum klukkan 12 á morgun áleiðis í Nauthólsvík þar sem safnast verður saman. Hjólað verður frá Spönginni, Smáratorgi og Mjódd. Hjólalestin leggur svo af stað úr Nauthólsvíkinni klukkan 13. Vetnisvagn frá Strætó fylgir lestinni og geta þeir sem hvíldar eru þurfi fengið þar athvarf á leiðinni í Húsdýragarðinn. Hressileg dagskrá hefst í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum klukkan 14 og að henni lokinni, klukkan 15.30, geta þátttakendur fengið frítt far með vetnisvagni Strætó til upphafsstaðanna, í Nauthólsvík, að Spönginni, Smáratorgi og í Mjóddina.

Allar nánari upplýsingar um Hjólalestina er að finna á www.isisport.is.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica