klukkan er 08:55


Fréttir

Ísland á iði – hjólaðu eða taktu strætó í vinnuna!

28.4.2005

Síðdegis í gær höfðu nær hundrað fyrirtæki skráð sig en unnt er að skráð lið til leiks allt fram á síðasta keppnisdag. Keppendur geta gengið, hjólað, skokkað, farið á línuskautum – eða tekið strætó. Keppnisgreinarnar eru tvær. Annars vegar verða þátttökudagar skráðir, hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna í fyrirtækinu. Hins vegar ræður fjöldi kílómetra, einnig hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna. Unnt er að skrá fyrirtæki með þrjá starfsmenn eða fleiri en keppt er í sex flokkum eftir fjölda starfsmanna. Fámennasti flokkurinn miðast við þrjá til níu starfsmenn en sá fjölmennasti við 400 starfsmenn eða fleiri.

Keppnin hefst formlega í Húsdýragarðinum mánudaginn 2. maí kl. 8.30. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Íþrótta- og Ólympíusambandsins, www.isisport.is. Þar er jafnframt hægt að skrá lið til leiks.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica