Nýju vagnarnir reynast vel þrátt fyrir barnasjúkdóma
Strætó hefur gengið frá kaupum á 30 nýjum vögnum af gerðinni Irisbus frá B&L. Fyrstu fimm vagnarnir voru teknir í notkun í febrúar síðastliðnum, tíu vagnar eru væntanlegir á göturnar í sumar, aðrir tíu í ágúst 2006 og síðustu fimm í ágúst 2007. Um er að ræða stærstu endurnýjun á vagnaflotanum sem ráðist hefur verið í hér á landi síðan hægri umferð var tekin upp 1968.
Steindór segir að samkvæmt ummælum vagnstjóra sem ekið hafa nýju vögnunum þyki þeir liprir og þægilegir í akstri, hljóðlátir og öflugir. Hins vegar hafi vagnstjórar bent á ýmsa agnúa sem í flestum tilvikum sé unnt að laga. Steindór segir að atriði eins og óþarfa hávaði í bjöllu og stefnuljósum verði löguð.
Inga Fanney Jónasdóttir tekur undir að Irisbus vagnarnir séu þægilegir í akstri en staðfestir að laga þurfi atriði eins og óþarfa hávaða í bjöllu og stefnuljósum. Hún segist óneitanlega sakna Scaniunnar sem hún ók áður en sé þó óðum að venjast nýja vagninum.
- Það tekur alltaf tíma að venjast nýjum aðstæðum á vinnustað og þessi vagn er um margt ólíkur þeim gamla. Hann hefur sína kosti en jafnframt ýmsa galla sem ég hef trú á að hægt verði að laga. Ég býst nú við að nýju vagnarnir verði teknir í sátt þegar fram líða stundir, segir Inga Fanney.