Kona á ný í sigursælt lið Strætó í ökuleikni
Fimmtán vagnstjórar tóku þátt í forkeppni sem haldin var nýverið. Hörður Tómasson, sem annaðist ásamt öðrum undirbúning keppninnar, segir að vagnstjórarnir hafi þurft að sameina lipurð, öryggi og hraða í ökuþrautunum. Markús Sigurðsson reyndist leiknastur allra. Félagar hans í liðinu verða Þórarinn Söebech, Rögnvaldur Jónatansson, Steindór Steindórsson, Kjartan Pálmarsson og Björg Guðmundsdóttir.
Hörður segir að vagnstjórar SVR og Strætó hafi tekið þátt í Norðurlandamótinu frá 1983 en keppnin á sér enn lengri sögu. Okkar menn unnu sinn fyrsta sigur í liðakeppni 1993 og í einstaklingskeppni árið eftir. Síðan hafa þeir verið sigursælir og einatt borið sigur úr býtum í keppninni við kollega sína í höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Vagnstjórar Strætó leggja mikinn metnað í að ná góðum árangri, að sögn Harðar.
- Menn sýna mikið keppnisskap og leggja sig alla fram en hafa jafnframt ákaflega gaman af þessu. Undirbúningur vegna mótsins í sumar gengur vel og við njótum góðs stuðnings frá Strætó til þess að standa vel að mótinu, segir Hörður.
