klukkan er 09:13


Fréttir

Björk Vilhelmsdóttir er nýr formaður stjórnar Strætó

18.3.2005

Ársreikningur Strætó 2004 var afgreiddur á stjórnarfundinum síðastliðinn föstudag. Samkvæmt honum var rekstrarkostnaður fyrirtækisins um 2,1 milljarðar króna á árinu. Eigin tekjur af rekstri námu um 825 milljónum króna en reksturinn er að öðru leyti fjármagnaður með framlagi eigendanna, sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður við rekstur vagnanna er langstærsti einstaki kostnaðarliðurinn, um 1,8 milljarðar króna.

Afgangurinn af rekstrinum á sér þrjár meginástæður, að sögn Harðar Gíslasonar aðstoðarframkvæmdastjóra. Meginástæðan er sú að fyrirhuguð útgjöld vegna kynningar á nýju leiðakerfi færðust yfir á árið 2005. Í öðru lagi varð rekstur vagna hagkvæmari en áætlað var, meðal annars vegna hagstæðs veðurfars. Í þriðja lagi varð gengishagnaður.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica