klukkan er 07:56


Fréttir

Þjónusta í Vallahverfi og breytt akstursleið í Grafarholti

17.3.2005

Í Grafarholtinu verður akstursleiðinni breytt til samræmis við það sem verður í nýju leiðakerfi sem tekur gildi næsta sumar. Þannig verður hætt að aka um Reynisvatnsveg, Jónsgeisla og Maríubaug, en þess í stað ekið um Kristnibraut og Gvendargeisla fram og til baka.

Ný leið hefur verið sett upp í Vallahverfið í Hafnarfirði og verður hún númer 40. Ekið er á 20 mín. fresti frá kl. 6:46 til 8:48 árdegis og 15:46 til 18:46 síðdegis virka daga. Aksturinn hefst við Fjörð og er ekið út Fjarðargötu, Strandgötu, Ásbraut og að Drekavöllum, þar sem snúið er við og ekin sama leið til baka.

Nánari upplýsingar um breytingarnar er að finna hér á heimasíðunni undir "Leiðakerfi" annars vegar fyrir leiðir 7 og 8, og hins vegar fyrir leið 40.

Breytingarnar tóku gildi föstudaginn 18. mars.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica