Kynning á nýja leiðakerfinu hlaut góðar viðtökur á skiptistöðvum
Í nýja leiðakerfinu eru alls 19 leiðir en þær skiptast í þrjá flokka eftir umfangi og eðli þjónustunnar Sex stofnleiðir flytja íbúa milli fjölmennustu íbúðasvæðanna og fjölmennustu atvinnusvæðanna. Sex aðalleiðir aka um fjölmenn hverfi á höfuðborgarsvæðinu og tengja þau saman. Vagnar á aðalleiðum hafa allir viðkomu á Hlemmi og flestir einnig á Lækjartorgi. Loks munu vagnar á sjö þjónustuleiðum aka um tiltekin hverfi eða sveitarfélög án þess að fara um miðborg Reykjavíkur.

Sérstakt tillit er tekið til þess tíma þegar flestir þurfa að komast leiðar sinnar - á morgnana og síðdegis á virkum dögum. Þetta þýðir að strætisvagnar á stofnleiðum munu aka á allt að 10 mínútna fresti. Þannig er komið til móts við þá sem þurfa að komast fljótt og örugglega milli staða á mesta annatíma í umferðinni. Ferðatími flestra sem taka strætó í vinnu eða skóla styttist - sérstaklega á háannatíma – og í heild verður þjónusta fyrir viðskiptavini betri.
Strætó hefur valið að nota orðið stofnleiðakerfiyfir nýja leiðakerfið sem tekur mið af aðferðafræði sem þekkist víða um heim og nefnist „Think Train - Drive Bus“. Stofnleiðakerfið byggist á stofnbrautum gatnakerfisins, greiðustu og fljótförnustu akstursleiðunum. Góð reynsla er af stofnbrautakerfi erlendis og hefur notkun strætisvagna aukist umtalsvert eftir að það hefur verið tekið í notkun.
Leiðakerfið er hannað með hliðsjón af víðtækri könnun um ferðavenjur frá árinu 2002 og atvinnu- og búsetuskiptingu samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgar-svæðisins. Við hönnun leiðakerfisins var lögð rík áhersla á samstarf og samráð við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á kynningarfundum í einstökum hverfum og sveitar-félögum komu fram margar gagnlegar tillögur sem nýttust við hönnun leiðakerfisins.

Samkvæmt mælingu á viðhorfi viðskiptavina Strætó bs. eru um 80% ýmist ánægð eða mjög ánægð með þjónustuna. Starfsfólk Strætó bs. vill auka ánægju viðskiptavina sinna og er sannfært um að nýtt leiðakerfi sé skref í rétta átt.
