hvert viltu komast...
klukkan er 13:42


Fréttir

Evrópska samgönguvikan og Strætó

20.9.2004

Evrópska samgönguvikan (Euorpena Mobility Week) stendur yfir dagana 16. - 22. september.   Í ár taka tæplega 350 borgir í löndum víðsvegar í Evrópu þátt í verkefninu. Meginþema vikunnar í ár er „Öryggi barna í umferðinni”, nokkuð sem alltaf má betrumbæta. Að þessu sinni taka öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þátt. 

Strætó er virkur þátttakandi í dagskrá vikunnar.  Þriðjudaginn 21. september verður sérstaklega tileinkaður almenningssamgöngum, en þann dag munu starfsmenn Strætó bs. verða til staðar á skiptistöðvum og kynna nýtt, heildstætt leiðakerfi sem fyrirhugað er að taki gildi í upphafi næsta árs.  Kynningin stendur yfir frá kl. 14 - 18. 

Samgönguvikunni lýkur með bíllausa deginum, sem verður miðvikudaginn 22. september.  Þann dag verður frítt í strætó - allan daginn.  Með bíllausa deginum er vakin athygli á öðrum fararmátum en einkabílnum, og fólk hvatt til að skilja bílinn eftir heima þann dag.  Það er tilvalið að nota tækifærið og ganga, hjóla, skokka eða fara í strætó þennan dag, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. 

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica