Stærsti kaupsamningur Strætó bs.

Talið frá vinstri.: Heiðar J. Sveinsson, B&L, Erna Gísladóttir, B&L, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs. og Guðjón Ólafur Jónsson, stjórnarformaður Strætó bs., undirrita samninginn.
Strætisvagnarnir eru af gerðinni Agora Citybus. B&L, umboðsaðili Irisbus, afhendir þá í fjórum áföngum fram til ársins 2007 og verða fimm fyrstu vagnarnir verða afhentir í desember næstkomandi. Tíu vagnar verða síðan afhentir í ágúst á næsta ári, tíu vagnar í ágúst árið 2006 og síðustu fimm vagnarnir í ágúst 2007. Agora vagnar hafa gefið góða raun hér á landi, en Hagvagnar hf., verktakar Strætó bs., keyptu 7 vagna af þessari gerð fyrir rúmum þremur árum.
Hver hinna nýju vagna rúmar 90 farþega, þar af 34 í sæti. Þeir eru búnir 245 hestafla einbunu CRDi díselvél og fjögurra gíra sjálfsskiptingu og uppfylla jafnframt umhverfis- og hljóðmengunarstaðla Evrópusambandsins. Vagnarnir eru svokallaðir lággólfsvagnar með þremur tvöföldum hurðum og innbyggðri braut við miðjuhurð sem auðveldar verulega aðgengi fyrir m.a. hjólastóla og barnavagna. Þá eru engar tröppur í þeim, heldur lækka vagnarnir eða “hneigja” sig niður í gangstéttarhæð fyrir farþega.
Alls eru 75 strætisvagnar í flota Strætó bs. og mun byggðsamlagið því endurnýja 30 þeirra með kaupsamningnum við B&L, en elstu vagnarnir eru meira en 20 ára gamlir. Kaupsamningurinn er gerður í framhaldi af útboði sem Strætó bs. efndi til fyrr á þessu ári og reyndist tilboð B&L lægst.
Irisbus hefur starfað frá árinu 1999 þegar almenningsvagnaframleiðsla Renault og Ivago var sameinuð. Fyrirtækið er einn stærsti framleiðandi almenningsvagna í heimi, með tæplega þriðjungshlut á alþjóðmarkaði.
