klukkan er 09:00


Fréttir

Lokatillaga nýja leiðakerfisins nú tilbúin

Tillagan er aðgengileg til skoðunar á vefnum

22.8.2004

Um langt skeið hefur staðið yfir vinna við heildarendurskoðun leiðakerfis almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að útbúa nýtt, heildstætt leiðakerfi fyrir allt þjónustusvæðið, sem tryggir í senn skilvirkar og öflugar almenningssamgöngur á öllu þjónustusvæðinu.

Í leiðakerfisvinnunni hafa margvíslegar forsendur og viðmið verið höfð til hliðsjónar, sem  og var tekið mið að viðamikilli ferðavenjukönnun á höfuðborgarsvæðinu, sem unnin var fyrri hluta árs 2002.  Ákveðið var að fá sænska ráðgjafafyrirtækið ÅF Trafikkompetens til samstarfs, ásamt samstarfsaðila þeirra VSÓ Ráðgjöf í Reykjavík.  Sérstakur leiðakerfishópur hefur verið starfandi innan Strætó bs., þannig að farið hefur saman víðtæk þekking og reynsla starfsmanna Strætó bs. ásamt faglegri þekkingu innlendra og erlendra ráðgjafa.

Eftir að tillagan leit dagsins ljós fyrr á þessu ári var efnt til víðtæks samráðs, bæði meðal almennings og aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins.  Haldnir voru margir fundir, jafnt með sveitarstjórnum og nefndum þeirra, sem og opnir fundir í hverfum og sveitarfélögum.  Þá hefur tillagan um all langt skeið verið aðgengileg hér á vef strætó.  Margvíslegar og gagnlegar ábendingar og athugasemdir hafa borist strætó í öllu þessu ferli, og hefur eftir atvikum verið reynt að taka tillit til þeirra eins og frekast er unnt.  Afrakstur allrar þessarar vinnu er nú aðgengilegur hér á vefnum, en hér er nú unnt að kynna sér tillöguna í heild sinni. 

Nýja leiðakerfið samanstendur af 19 leiðum alls, þar af 6 stofnleiðum.  Stofnleiðum er ætlað það hlutverk að flytja farþega á milli fjölmennustu íbúasvæðanna og fjölmennustu atvinnu- og þjónustusvæðanna á sem skilvirkastan hátt.  Þær aka alla jafna á stofnleiðum í gatnakerfinu, og næst þannig að halda háum meðalferðahraða og með því stytta ferðatímann.  Stofnleiðirnar munu aka með 10 mínútna tíðni á álagstímum, þ.e. á morgnana og síðdegis virka daga. 

Áhersla er lögð á að efla forgang í umferð fyrir strætisvagna, einkum þar sem umferðarálag er hvað mest.  Með því að tryggja strætó greiða för næst að minnka tafir, og þar með stytta ferðatímann.

Ekki liggur enn ljóst fyrir hvenær unnt verður að taka nýja leiðakerfið í notkun, en það verður gert síðar í vetur um leið og gerðar hafa verið nauðsynlegar breytingar á aðstöðu strætó, m.a. við Hlemm.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica