Maraþon og Menningarnótt
Aðstaða fyrir vagnana í miðborginni verður flutt af Lækjartorgi og verður allan daginn í Vonarstræti við Ráðhús Reykjavíkur. Ekki verður ekið um Hverfisgötu þennan dag og munu vagnar aka um Fríkirkjuveg, Sóleyjargötu Hringbraut og Snorrabraut á milli Lækjartorgs og Hlemmtorgs.
Til þess að sem flestir geti notið atburða dagsins mun Strætó bs. verða með aukin viðbúnað til og frá miðborginni, en búast má við mikilli umferð og að brottfarartímar muni að einhverju leyti raskast, en aukavagnar verða settir inn eftir þörfum.
Í lok menningarnætur mun allt leiðakerfi Strætó verða framlengt um eina klukkustund og munu vagnar aka fram yfir kl. 1 um nóttina.
