klukkan er 08:28


Fréttir

Norðurlandameistarar þriðja árið í röð

21.6.2004

Norskir strætisvagnstjórar urðu í öðru sæti, en finnskir í því þriðja. Keppnislið Strætó bs. er valið að undangenginni forkeppni, sem í tóku á fjórða tug vagnstjóra fyrirtækisins.  Sex stigahæstu einstaklingarnir voru síðan valdir í keppnisliðið. 

Keppnin hefur verið haldin síðan árið 1976 en íslenskir bílstjórar hafa tekið þátt í henni undanfarin 20 ár.  Þeir sigruðu fyrst árið 1993 og hafa gert það sex sinnum undanfarin ellefu ár.  Keppnin í ár var haldin í Noregi, en sú næsta verður haldin á Íslandi.

Við óskum keppnisliðinu til hamingju með þennan glæsilega árangur, og óskum þeim góðs gengis í keppninni á heimavelli að ári.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica