Lokun Suðurgötu - breytt akstursfyrirkomulag
Leið 2: Akstur um miðbæinn í vesturátt: Beygt til hægri úr Hverfisgötu norður Kalkofnsveg, þar verður sett upp biðstöð til bráðabirgða (við Arnarhól). Ekið sem leið liggur vestur Geirsgötu, suður Ægisgötu, þaðan vestur Vesturgötu og áfram hefðbundna leið. Akstur frá Granda um miðbæinn í austurátt breytist ekki.
Leiðir 3 og 4: Akstur um miðbæinn í vesturátt: Beygt til hægri úr Hverfisgötu norður Kalkofnsveg, þar sem verður sett upp biðstöð til bráðabirgða (við Arnarhól). Ekið sem leið liggur vestur Geirsgötu, suður Ægisgötu að Hofsvallagötu (við Landakot) og áfram hefðbundna leið. Akstur um miðbæinn í austurátt breytist ekki.
Leiðir 5 og 6: Akstur um miðbæinn í vesturátt: Ekin hefðbundin leið um Hverfisgötu og Lækjargötu að Vonarstræti. Í stað þess að aka vestur Vonarstræti er ekið um Fríkirkjuveg og Skothúsveg, og inn á hefðbundna akstursleið á mótum Suðurgötu og Skothúsvegar. Akstur um miðbæinn í austurátt: Ekið austur Skothúsveg, norður Fríkirkjuveg og beygt til austurs inn á Hverfsigötu. Ath: Biðstöð leiða 5 og 6 flyst því úr Hafnarstræti að Stjórnarráðshúsinu neðst á Hverfisgötu.
Leiðir 7, 110, 111 og 112: Akstur að endastöð við Hafnarstræti verður vestur Skothúsveg, norður Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Kalkofnsveg, vestur Geirsgötu, suður Pósthússtræti og áfram hefðbundna leið inn á endastöðina. Akstur frá endastöð verður suður Lækjargötu og Fríkirkjuveg, vestur Skothúsveg og inn á hefðbundna akstursleið á mótum Suðurgötu og Skothúsvegar.
Leið 115: Akstur að endastöð við Hafnarstræti breytist ekki. Akstur frá endastöð verður norður Kalkofnsveg, vestur Geirsgötu, suður Ægisgötu að Hofsvallagötu (við Landakot) og áfram hefðbundna leið.
Leið 140/150: Biðstöð neðst á Hverfisgötu færist eilítið ofar í brekkuna til að skapa rými fyrir leiðir 5 og 6 meðan á þessum breytingum stendur.
