Akstur á þjóðhátíðardaginn 17. júní
Vegna hátíðahalda 17. júní í miðborg Reykjavíkur verður akstur vagna Strætó bs. hagað með eftirfarandi hætt:
Leiðir 3, 4, 5 og 6 munu aka frá Hlemmi í vestur um:
Snorrabraut – Sæbraut – Geirsgötu – Pósthússtræti – Tryggvagötu – Geirsgötu – Ægisgötu – Túngötu og Hofsvallagötu. Biðstöð verður sett upp við Miðborgarstöð lögreglu í Pósthússtræti.
Til baka munu þessar leiðir aka um Hofsvallagötu - Túngötu - Ægisgötu - Geirsgötu ( með biðstöð í aðrein að Kalkofnsvegi) - Sæbraut og Snorrabraut að Hlemmi.
Leið 2 mun aka um: Tryggvagötu - Grófina í Vesturgötu og til baka um: Vesturgötu - Grófina ( vinstri beygja í Tryggvagötu ) og Geirsgötu.
Leiðir 7, 110, 111, 112 og 115 munu eiga viðkomustað í Tryggvagötu við Tollhús og aka Hofsvallagötu - Túngötu - Ægisgötu - Geirsgötu - Pósthússtræti að Tollhúsi og frá Tollhúsi: Tryggvagötu - Geirsgötu - Ægisgötu - Túngötu - Hofsvallagötu.
Leið 150 mun aka vestur Hringbraut – Hofsvallagötu - Túngötu - Ægisgötu - Geirsgötu ( með biðstöð á aðrein að Kalkofnsvegi ) - Geirsgötu - Sæbraut og Snorrabraut að Hlemmi.
