klukkan er 08:31


Fréttir

Gildistöku nýja leiðakerfisins frestað til haustsins

8.6.2004

Undanfarnar vikur og mánuði hefur staðið yfir víðtækt kynningar- og samráðsferli, þar sem margar gagnlegar ábendingar og athugasemdir um tillögu að nýju leiðakerfi hafa komið fram. Margir hafa nýtt sér að senda okkur töluvpóst, eftir að hafa skoðað tillögurnar hérna á vefnum, sem og hafa kynningarfundir verið ágætlega sóttir, þar sem málin hafa verið rædd.  Kerfið er nú að mestu tilbúið, þ.e. aksturleiðir liggja fyrir.  Framundan er að útfæra tímatöflur og fleira sem snýr að því að hrinda nýja kerfinu í framkvæmd.

Fram til þessa hefur verið stefnt að upptöku nýja kerfisins í ágúst.  Nú er hins vegar staða mála sú, að nauðsynlegt reynist að fresta gildistöku þes a.m.k. fram í október.  Ástæða þess er einkum sú, að þær framkvæmdir sem ráðast þarf í samhliða kerfisbreytingunni eru tímafrekari en gert var ráð fyrir, og þurfa í einhverjum tilvikum að fara í gegnum deiliskipulagsferli.  Það ferli er nokkuð tímafrekt, og því ljóst að ekki næst að ljúka því á tilsettum tíma. 

Um leið og mál skýrast munum við tilkynna um hvaða dag nýja kerfið verður tekið í notkun.  Eins og málum er nú háttað, er stefnt að því í október n.k.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica