klukkan er 08:56


Fréttir

Tillaga að nýju leiðakerfi nú aðgengileg á vefnum

Nú má sjá hvernig nýja leiðakerfið lítur út - þitt álit skiptir máli!

6.4.2004

Með stofnun Strætó bs. um mitt ár 2001 komust almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu í fyrsta skipti undir einn hatt. Þá var ákveðið að ráðast í heildarendurskoðun leiðakerfisins, og mynda nýtt, heildstætt leiðakerfi fyrir allt höfuðborgarsvæðið.

Undirbúningur við gerð nýja kerfisins hófst síðla árs 2001, og hefur staðið óslitið síðan.  Verkið hefur verið unnið af sérstökum leiðakerfishóp innan fyrirtækisins, auk þess sem náið samstarf hefur verið við sænska ráðgjafafyrirtækið ÅF Trafikkompetens og VSÓ Ráðgjöf í Reykjavík.  Tillögurnar hafa undanfarið verið kynntar aðildarsveitarfélögum Strætó bs., þ.e. öllum 7 sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. 

Markmiðið með nýja leiðakerfinu er að bæta þjónustuna.  Leiðum fækkar úr 35 í 18, þar ar verða 6 "stofnleiðir".  Þeim er ætlað að flytja farþega án skiptingar úr fjölmennustu hverfum og nágrannasveitarfélögunum til stærstu áfangastaðanna, sem oftast eru fjölmennir vinnustaðir og/eða skólar, eða miðborg Reykjavíkur.  Með því að einfalda akstursleiðir eykst ferðahraðinn, og ferðatíminn styttist.  Þá er einnig gert ráð fyrir aukinni tíðni á þeim tímum dagsins sem flestir eru á ferðinni, þ.e. kvölds og morgna virka daga. 

Við hvetjum almenning til að kynna sér tillöguna.  Við tökum gjarnan á móti ábendingum, athugasemdum og fyrirspurnum, og reynum eftir föngum að taka tillit til þeirra.  Öllum sem senda okkur fyrirspurn verður svarað.

Gert er ráð fyrir að nýja leiðakerfið taki gildi í ágúst 2004.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica