Fréttir
Nýtt leiðakerfi Strætó kynnt fyrir íbúum Laugardals
Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó, Pétur U. Fenger aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó og Smári Ólafsson sérfræðingur frá VSÓ ráðgjöf sögðu frá markmiðum og aðferðafræði leiðakerfisins og kynntu leiðakerfið sjálft með sérstakri áherslu á Laugardalshverfi. Að erindunum loknum var opnað fyrir fyrirspurnir og umræður úr sal. Voru umræðurnar mjög góðar og voru forsvarsmenn Strætó mjög ánægðir með fundinn og þær ábendingar sem fram komu. Að lokum var boðið upp á léttar veitingar og ræddu fundarmenn áfram saman á óformlegum nótum um leiðakerfið.
