klukkan er 08:42


Fréttir

Afkoma Strætó bs 2003 umfram væntingar

27.2.2004

Heildarvelta Strætó b.s. á nýliðnu ári voru liðlega 2 miljarðar króna.  Fargjaldatekjur námu tæpum 800 miljónum, en framlög aðildarsveitarfélaganna voru rúmir 1,2 miljarðar króna.  Rekstrargjöld voru liðlega 1,9 miljarðar, og fjármagnsgjöld rúmar 19 miljónir króna. 

Rekstrarkostnaður byggðasamlagsins var talsvert lægri árið 2003 en áætlanir gerðu ráð fyrir.  Með markvissum aðgerðum og samstilltu átaki starfsfólks hefur tekist að ná fram hagræðingu á ýmsum sviðum rekstursins, án þess að það hafi bitnað á þjónustunni.  Áfram verður haldið á þeirri braut, og sífellt leitast við að leita hagkvæmustu leiða í rekstrinum.

Stofnfé Strætó bs. er 100 miljónir króna, en eigið fé byggðasamlagsins er nú rúmar 122 miljónir króna.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica