klukkan er 08:24


Fréttir

Nýtt leiðakerfi Strætó tekið í notkun næsta sumar

Einfaldari og betri almenningssamgöngur

8.12.2003

Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir að nýja leiðakerfið byggist á annarri hugsun en það kerfi sem fyrir er, það verði einfaldara og meira tillit tekið til álagstíma. Áþreifanlegasta breytingin felst í að laga framboð ferða að þeirri eftirspurn sem raunverulega er fyrir hendi. Ferðatíðni á álagstímum, fyrst á morgnana og síðdegis, verður aukin þannig að ferðir verði allt að því á tíu mínútna fresti en að lengra verði milli ferða utan álagstíma. Ætlunin er að kynna almenningsamgöngur sem raunhæfan og góðan valkost andspænis einkabílnum.

Nýja leiðakerfið felur í sér mikla einföldun frá því kerfi sem nú þekkist. Í stað 36 ökuleiða verða þær 18: 5 stofnbrautaleiðir og 13 safnleiðir sem tengjast þeim. Þessi hugmyndafræði hefur verið kölluð „Think train, drive bus“ á ensku, þ.e. að stofnbrautaleiðirnar eru skipulagðar eins og um lestarkerfi væri að ræða. Þannig á að nást hærri meðalhraði og ferðatími að styttast. Jafnframt verður lögð áhersla á aukinn og samræmdan forgang fyrir strætó í umferðinni til að tryggja sem minnstar tafir. Nýja leiðakerfið á að vera hratt, skilvirkt og áreiðanlegt.

Nýtt leiðakerfi gerir ráð fyrir að endastöð hinna fimm stofnbrauta verði í Vatnsmýrinni þar sem BSÍ er með höfuðstöðvar og þar sem miðstöð almennings-samgangna á landsvísu er fyrirhuguð. Með slíkum höfuðstöðvum verða á einum stað  endastöðvar strætisvagna, hópferðabíla og flugrútunnar sem heldur uppi samgöngum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og þar með nýtist nálægðin við afgreiðslu innanlandsflugins. Komið verður á tengingu milli ólíkra tegunda almennings-samgangna sem ekki er fyrir hendi í dag. Með því að tengja stofnbrautakerfið við aðrar almenningsamgöngur verður alltaf hægt að komast á leiðarenda án þess að verða strandaglópur. Eitt kerfi tekur við þegar öðru sleppir. 

Nýja leiðakerfið verður skipulagt með hliðsjón af umfangsmikilli könnun um ferðavenjur frá árinu 2002, auk þess sem tekið er mið af atvinnu- og búsetuskiptingu samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Erlendir ráðgjafar voru fengnir til að forhanna kerfið í samvinnu við íslensk fyrirtæki. Úr þeirri vinnu varð tillaga að stofnleiðakerfi. Með notkun hermilíkans voru gæði núverandi leiðakerfis og stofnleiðakerfisins borin saman og fundnar bestu leiðir í kerfinu. Næstu mánuðir verða nýttir til þess að kynna útfærslu kerfisins í einstökum hverfum og sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og verður í því sambandi lögð rík áhersla á samstarf og samráð.

Meðal farþega Strætó bs. ríkir almenn ánægja með þjónustuna. Viðhorf viðskipta-vinanna er mælt reglulega og hefur sú mæling leitt í ljós að u.þ.b. 80% viðskiptavina fyrirtækisins eru ýmist ánægðir eða mjög ánægðir með þjónustu Strætó. „Þetta viljum við efla og endurskoðað leiðarkerfi er þáttur í þeirri viðleitni,“ segir  Ásgeir.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica