klukkan er 09:16


Fréttir

Stöðugt unnið að endurbótum ráðgjafans

8.12.2003

Ráðgjafinn á vef Strætó bs. markar tímamót í bættri þjónustu við farþega okkar.  Með því að slá inn upphafs- og áfangastað má á augabragði fá fram tillögur að heppilegasta leiðavali.  Smíði ráðgjafans var all flókið verkefni, enda hefur komið á daginn að ekki varð í fyrstu við öllu séð, og því komu á stundum sérkennilegar ráðleggingar um ferðaval.  Í öllum tilvikum hefur verið brugðist við slíkum tilvikum, og gerðar viðeigandi lagfæringar.  Enn hefur okkur ekki tekist að komast í veg fyrir alla hnökra, og biðjum við viðskiptavini okkar því að sýna okkur tillitssemi meðan við komum þessum málum í lag.  Jafnframt bendum við farþegum okkar á, að komi niðurstaða sem ekki er líklegt að teljist vera rétt, t.d. óheyrilega langur ferðatími, að leita upplýsinga í leiðabók eða hafa samband við upplýsingaþjónustuna í síma 540 2700 og fá gleggri upplýsingar.  Jafnframt hvetjum við alla farþega okkar að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara á vefnum, þannig að við getum tekið á málum og lagfært þau.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica