Hillir undir lok gatnaframkvæmda í Mjódd
Nýjar vegtengingar senn teknar í notkun
Eftir að nýju mislægu gatnamótin á mótun Reykjanesbrautar og Stekkjarbakka voru opnuð hafa strætisvagnar ekið um nýju hringtorgin á meðan unnið hefur verið að frágangi gatnatenginga fyrir strætó. Senn verður opnuð vegtengin frá nýju brúnni inn á Álfabakka til suðurs, þannig að strætisvagnar á leið í Mjódd úr bænum munu geta ekið greiðari og styttri leið inn á skiptistöðina. Einnig verður opnuð tenging fyrir strætó inn á Reykjanesbrautina, þannig að strætisvagnar sem eru á leið úr Mjódd áleiðis í bæinn munu framvegis geta ekið beint um nýja aðrein frá Mjódd inn á Reykjanesbraut.
Við þökkum farþegum okkar góðan skilning á meðan framkvæmdum hefur staðið, um leið og við fögnum því að geta nú boðið bætta þjónustu í nágrenni við Mjódd.
