Fréttir
Breytt akstursleið á leið 112
Leið 112 ekur nú um Skemmuveg
Leið 112 er hraðleið milli Lækjartorgs og Fella í Breiðholti, ekið er um Nýbýlaveg í Kópavogi með viðkomu í Mjódd. Fram til þessa hefur leiðin ekið yfir Reykjanesbraut á mislægum gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar. Með tilkomu nýju mislægu gatnamótanna á mótum Stekkjarbakka og Reykjanesbrautar hefur akstursleiðinni nú verið breytt, þannig að framvegis er ekið um Smiðjuveg í báðar áttir. Með þessari breytingu batnar til muna þjónusta við iðnaðar- og þjónustuhverfið við Skemmuveg og Smiðjuveg í Kópavogi. Tvær biðstöðvar eru við Smiðjuveg.
