klukkan er 07:56


Fréttir

Þriðji vetnisvagninn kominn til landsins

Nú aka vetnisvagnar á leið 2

30.10.2003

Þriðji og síðasti vetnisvagninn er kominn til  landsins, og verður tilbúinn til notkunar næstu daga.  Með því að allir vagnarnir þrír eru komnir verður unnt að hafa alla bílana á leið 2 vetnisvagna.  Þannig ætti að vera nokkuð tryggt að þeir sem taka sér far með þeirri leið ferðist með þessum nýstárlegu og spennandi farartækjum. 

Hafa ber í huga að vagnarnir eru tilraunaframleiðsla, og ýmislegt kann að koma upp á sem e.t.v. leiðir til þess að ekki er alltaf unnt að hafa þá í rekstri.  Ef allt gengur eftir, og þegar allt er komið í fastar skorður, má þó reikna með alla jafna að vetnisvagnarnir séu í akstri virka daga til kl. 19. 

Verið velkomin í vetnisstrætó!

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica