klukkan er 10:55


Fréttir

Lifandi landakort í Ráðhúsinu

Landupplýsingakerfi Reykjavíkur 15 ára

27.10.2003

Aðstandendur sýna dæmi um það hvaða gögn þeir leggja inn í LUKR og hvernig landupplýsingar nýtast í þeirra starfi. Auk þess koma aðilar frá Reykjavíkurhöfn, Strætó, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni í Reykjavík og Neyðarlínunni og kynna hvernig notkun þeirra á landupplýsingum bætir þjónustu við almenning. 
Þá verður einnig sýndur afrakstur verkefna grunnskólabarna sem fengist hafa við verkefni tengd landupplýsingum og umhverfi sínu.

27. október Ráðstefna

Mánudaginn 27. október verður haldin ráðstefna frá 9.00 - 16.00 sem er öllum opin. Fyrir hádegið munu aðstandendur LUKR  segja frá gagnaöflun, notkun, áhugaverðum nýjungum og hugmyndum um framþróun LUKR. Tilgangur kynninganna er einkum að gefa notendum, og ekki síst væntanlegum notendum, færi á að læra hver af öðrum og sýna fjölbreytta notkunarmöguleika landupplýsinga. Eftir hádegið koma fulltrúar Strætó, Neyðarlínu, Lögreglunnar í Reykjavík og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og segja frá því hvernig þeir nota og þróa upplýsingar frá Landupplýsingakerfinu í sínu starfi.

28. október Borgin í bítið og hverfið mitt
Dagskrá þriðjudags hefst með Borginni í bítið, þar sem möguleikar LUKR í stjórnun og ákvarðanatöku verða í brennidepli. Fjallað verður um notagildi LUKR fyrir borgarfulltrúa og skoðaðar þær lýðfræðiupplýsingar sem kerfið getur veitt.
Einnig verður stutt kennslustund í Borgarsjánni fyrir borgarstarfsmenn og aðra áhugasama.

Eftir hádegi munu grunnskólanemendur sem unnið hafa verkefni tengd Borgarvefsjá og umhverfi sínu kynna vinnu sína, segja frá uppgötvunum og viðra sínar hugmyndir.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica