Fréttir
Vetnisvagnarnir á leiðakerfi Strætó bs
Nú styttist í að vetnisvagnarnir hefji akstur á leiðakerfi Strætó bs. Frá því vagnarnir voru formlega teknir í notkun og kynntir almenningi á vel sóttri fjölskylduhátið sunnudaginn 5. október s.l., hefur verið unnið að frekari undirbúningi, vagnarnir útbúnir með viðeigandi búnaði og ýmsar prófanir og reynsluakstur verið framkvæmdur. Við reiknum með að öðru hvoru megin við helgin 18 - 19. október geti akstur hafist á leiðakerfinu, og munu vagnarnir fyrst um sinn aka á leið 2. Nánari upplýsingar verða settar hér inn á vefinn um hvar vagnarnir aka hverju sinni.
