klukkan er 08:37


Fréttir

Reykjavík öðrum borgum til eftirbreytni.

Vel heppnuð Evrópsk samgönguvika 2003.

7.10.2003

Evrópsk samgönguvika var haldin í fyrsta skipti hér á landi dagana 16. – 22. september. Af því tilefni var efnt til fjölda viðburða en með þeim tókst að vekja töluverða athygli á samgöngu- og umhverfismálum. Að sögn Jóhönnu B. Magnúsdóttur, verkefnisstjóra Evrópsku samgönguvikunnar, tókst framtakið vel og hún segir að það hafi komið sér á óvart hve mikil þátttakan varð.  „Almenningur sýndi viðburðum tengdum vikunni mikinn áhuga og einnig var ánægjulegt hversu mörg fyrirtæki og stofnanir vildu standa að hvers kyns viðburðum.“

Forseti Íslands og Borgarstjóri Reykjavíkur ásamt Hjálmari ÁrnasyniSamgönguvikan í Reykjavík vakti ekki eingöngu athygli hér á landi því að á ráðstefnu ACCESS, samgöngunefndar Samtaka Evrópuborga (Eurocities), sem var haldin dagana 25. og 26. september í Leeds í Englandi kom fram að dagskráin í Reykjavík hefði verið til fyrirmyndar og þeim borgum sem vilja ná fram markmiðum samgönguvikunnar til eftirbreytni. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkur, sat ráðstefnuna og segir hann að sú athygli sem Reykjavík fékk hafi verið sérstaklega ánægjuleg og í henni falist mikil viðurkenning.

Helga BragaSamgönguvikan í Reykjavík fékk mikla umfjöllun í fjölmiðlum og Jóhanna segir margt benda til þess að umræðan um samgöngumál sé að breytast og fleiri sýni henni áhuga. „Mér virðist sem nýr tónn hafi verið sleginn í umræðunni. Hún fór fram af meiri alvöru en áður og það er eins og áhugi hafi aukist á samgöngumálum og hvernig þau tengjast umhverfismálum.“ Sem dæmi um þá umræðu sem skapaðist vegna Evrópsku samgönguvikunnar má nefna að hugmyndir nýráðins borgarverkfræðings um að skólafólk fái frítt í strætó vöktu mikla athygli.

Jafnframt skapaðist fjörug umræða um hugmyndir Árna Þórs Sigurðssonar um léttlestakerfi í Reykjavík. Samgönguvikan skilaði einnig áþreifanlegum árangri því að bílaumferð var 2% minni en venjulega á Bíllausa daginn en þá voru borgarbúar hvattir til þess að skilja bílinn eftir heima og nýta sér aðra samgöngukosti.

Jóhanna segir að nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafi tekið þátt í Evrópsku samgönguvikunni að einhverju leyti. Hafnarfjörður var með dagskrá og Mosfellsbær efndi til hjólreiðadags. Ennfremur ávarpaði fulltrúi Kópavogs Reykvíkinga á hjólreiðadaginn. „Evrópska samgönguvikan tókst það vel að rætt er um að öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taki þátt í dagskránni að ári og að undirbúningur hefjist fyrr svo að hægt verði að byggja á þeirri velgengni sem vikan naut í ár,“ segir Jóhanna að lokum.

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica