klukkan er 10:37


Fréttir

Strætó bs. fær fyrstu vetnisvagnana afhenta

6.10.2003

Afhending lyklanna fór fram með formlegri athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Viðstaddir voru m.a. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra, Þórólfur Árnason, borgarstjóri og forráðamenn þeirra fyrirtækja sem standa að verkefninu. Aðstandendur verkefnisins fluttu ræður en við það tækifæri afhenti Þorsteinn I. Sigfússon, stjórnarformaður Íslenskrar Nýorku, Hjálmari Árnasyni þingmanni heiðursverðlaun Íslenskrar Nýorku 2003, fyrir frumkvæði hans og baráttu í vetnismálum. Að athöfn lokinni var gestum boðið í fyrstu ferð með vögnunum um miðborgina, en bílstjóri í þeirri ferð var Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs.

Vagnarnir og vetnisstöðin, sem opnuð var í vor, eru hluti af stóru rannsóknar- og þróunarverkefni um vetnisnotkun sem kallast ECTOS. Heildarkostnaður verkefnisins  nemur ríflega 700 milljónum króna. Evrópusambandið styrkir verkefnið um 40% kostnaðar en eigendur Íslenskrar NýOrku og Skeljungur leggja fram stærsta hlutann. Íslensk stjórnvöld hafa stutt verkefnið en það er í samræmi við stefnu þeirra sem miðar að sjálfbæru vetnissamfélagi og aukinni nýtingu endurnýjanlegra orkulinda og stefnu í umhverfismálum. Reykjavíkurborg hefur einnig stutt verkefnið með ýmsum hætti og það fellur vel að stefnu borgarinnar í orkumálum eins og kemur m.a. fram í nýlegu kynningarátaki „Reykjavik Pure Energy“.

Markmiðið með ECTOS verkefninu er að prófa þrjá strætisvagna sem nota vetni sem orkubera og eru knúnir svokölluðum efnarafölum. Einnig er rekin vetnisstöð sem framleiðir vetni með rafgreiningu vatns og skilar eldsneytinu beint á eldsneytisgeyma farartækja. ECTOS verkefnið er fyrirrennari annarra svipaðra verkefna sem nú eru að hefjast í 9 borgum Evrópu og einni í Ástralíu. Meginmunurinn á íslenska verkefninu og öðrum er sá að vetnisstöðin, sem reist var við Selectstöðina við Vesturlandsveg, er sú eina sem er aðgengileg almenningi. Að auki eru gerðar hér á landi mun víðtækari efnahags-, umhverfis- og samfélagsrannsóknir en annars staðar þar sem hlutfall vetnisvagna verður hæst í heiminum hérlendis eða 3-4% af heildarflota almenningsvagna.

Vetnisvagnarnir sem afhentir voru eru svokallaðir lággólfsvagnar en hið lága gólf þeirra auðveldar aðgengi. Þeir eru þó um hálfum metra hærri en hefðbundnir dísilvagnar þar sem stór hluti vetnisbúnaðarins, s.s. geymsluhylki og efnarafalar, er geymdur uppi á sérstaklega styrktri þakgrind vagnanna. Drægi þeirra er áætlað um 200 km en það dugar vel fyrir hefðbundinn dagsakstur hjá Strætó. Hámarkshraði vagnanna er um 80 km/klst.

Eftir hádegi var almenningi boðið um borð í vagnana þar sem þeim var ekið milli höfuðstöðva Strætó bs. í Mjódd og vetnisstöðvar Skeljungs við Vesturlandsveg. Á leiðinni voru farþegar fræddir um vetni á léttan og skemmtilegan hátt en þau Jói G. og Selma Björnsdóttir voru í öðrum vagninum og þær Ásta Hrafnhildur og Lóa ókurteisa í hinum. Efnt var til fjölskylduskemmtunar í Mjódd þar sem Dýrin í Hálsaskógi skemmtu, KK og Magnús Eiríksson sungu, krakkar gátu farið í leiktæki og boðið var upp á hressingu. Við vetnisstöð Skeljungs á Vesturlandsvegi gátu ungir sem aldnir fræðst um nýju vetnisvagnana og þá tækni sem notuð er til að knýja þá áfram

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica