Fjölskylduhátíð Strætó og Skeljungs
Í tilefni af komu vetnisstrætisvagna til landsins bjóða Strætó og Skeljungur til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 5. október kl. 13-16. Skemmtunin hefst við aðalstöðvar Strætó bs. í Mjódd kl. 13 með því að Lilli klifurmús og Mikki refur úr Dýrunum í Hálsaskógi skemmta börnunum. Meðal þess sem verður á fjölbreyttri dagskrá í stóru hátíðartjaldi í Mjódd eru ýmis söngatriði. Þeir KK og Maggi stíga á stokk, Lísa syngur nokkur lög og sigurvegarar í Samfés 2003, þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson og Hjörtur Jóhannsson, taka nokkur lög. Þar að auki þenja harmonikuleikarar nikkurnar.
Á staðnum verða leiktæki frá Sprell og andlitsmálun fyrir börnin.
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, enda fær fullorðna fólkið kaffisopa og börnin ís og fleira óvænt.
Við vetnisstöð Skeljungs geta gestir fræðst um vetni sem framtíðarorkugjafa. Starfsmenn Íslenskrar NýOrku fræða gesti um áhrif vetnis á umhverfið og svara spurningum. Trúður og harmonikkuleikari taka á móti gestum við vetnisstöðina og gefa krökkunum boli og blöðrur og fullorðna fólkið fær vetnisdrykk.
Vetnisvagnarnir aka milli Mjóddar og vetnisstöðvarinnar. Um borð í vetnisvögnunum verður mikið um að vera. Í öðrum þeirra verða þau Selma Björns og Jói í Stundinni okkar og í hinum þær Ásta Hrafnhildur úr Stundinni okkar og Lóa ókurteisa. Þau munu skemmta börnunum á ferðalaginu stendur.
