Vetnisvagnarnir komnir til landsins
Verða teknir í notkun 5. október
Þriðjudaginn 30. september var 2 vetnisstrætisvögnum skipað á land, en alls fær Strætó bs. 3 slíka vagna til afhendingar. Þriðji vagninn er væntanlegur innan fárra vikna. Vagnarnir eru af gerðinni Mercedes Benz Citaro, framleiddir í Þýskalandi. Þeir eru búnir efnarafal sem gengur fyrir vetni, en raforkan sem efnarafallinn framleiðir er nýtt til að knýja rafmótor vagnsins. Útblásturinn úr efnarafalnum er hreint vatn, þannig að hér er um að ræða mengunarlaus farartæki! Alls taka 10 borgir í Evrópu þátt í vetnisverkefninu, en hver borg fær 3 vagna til afnota í 2 ár. Þegar eru komnir vagnar til Madrid og Hamborgar, en Reykjavík er sú þriðja í röðinni sem fær vagnana afhenta.
Vetnisvagnarnir verða formlega teknir í notkun sunnudaginn 5. október, en þann dag munu Strætó bs., Skeljungur hf. og Íslensk Nýorka hf. efna til fjölskylduhátíðar í Mjóddinni og við vetnisstöðina á Vesturlandsvegi. Í boði verður fræðsla og skemmtun fyrir alla fjölskylduna, auk þess sem fólki gefst kostur á að taka sér far með vetnisvagninum.
Velkomin í Mjóddina og á vetnisstöðina við Vesturlandsveg á sunnudag, og fagnið með okkur þessum merka viðburði!
