Að lokinni evrópskri samgönguviku
24.9.2003
Evrópsku samgönguvikunni lauk með bíllausa deginum mánudaginn 22. september. Þann dag var frítt í strætó. Skólabörn úr grunnskólunum í Breiðholti glöddu strætófarþega þennan dag með söng og ljóðaflutningi. Strætó bs. þakkar öllum þeim fjölmörgu sem glöddu strætófarþega þennan dag, sem og þeim sem tóku sér far með strætó á bíllausa deginum 2003