klukkan er 08:38


Fréttir

Bíllaus dagur í dag

22.9.2003

Reykjavíkurborg tekur nú þátt í bíllausa deginum í þriðja skipti og er því meðal þeirra 1003 borga og bæja sem taka þátt í ár. Bíllausi dagurinn 22. september er þungamiðja Evrópskrar samgönguviku og jafnframt lokapunktur hennar, en síðasta vika hefur verið tileinkuð ýmsum hliðum borgarumferðar.

Á Bíllausa deginum verður frítt í strætó. Þar að auki mun Edda útgáfa bjóða farþegum andlega skemmtan á ferðalögum sínum með strætó, en fjöldi bóka verður til aflestrar í öllum vögnum Strætó í tilefni dagsins.

Börn í fjórðu bekkjum grunnskóla Breiðholts hafa æft dagskrá sem þau flytja í strætisvögnum hverfisins frá klukkan níu til eitt í tilefni Bíllausa dagsins. Börnin fara frá skólanum sínum einn hring um Breiðholtið. Að því loknu verður móttaka fyrir þau í aðalstöðvum Strætó bs. við Þönglabakka.

Opinn fundur Vistverndar í verki um samgöngur í borginni verður í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan hálf fimm. Vistvernd í verki er umhverfisverkefni fyrir heimili sem varðar fimm þætti umhverfismála: samgöngur, sorp, orku, innkaup og vatn. Verkefnið styður og hvetur þátttakendur til að taka upp vistvænni lífsstíl og hefur sjálfbært samfélag að leiðarljósi. Tveir þátttakendur segja frá reynslu sinni og ýmsum aðferðum við að takmarka mengun vegna notkunar bifreiða. Félagi í Íslenska fjallahjólaklúbbnum fræðir fólk um hjólreiðar í borginni og Runólfur Ólafsson frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda fjallar um bílmenningu og akstur.

Bíllausi dagurinn er haldinn til að hvetja fólk til að nota almenningssamgöngur eða fararskjóta annan en einkabíl, til að draga úr mengun í borginni. Samgönguvikan er haldin til þess að vekja almenning til umhugsunar um umferðarmenningu. Einnig verður lögð áhersla á mikilvægi þess að skapa betra aðgengi, meðal annars fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Með því er ætlunin að vekja athygli á þeim mörgu þáttum sem varða samgöngur og hversu margar leiðir eru færar þeim sem vilja efla umferðarmenningu og draga úr mengun.

Skoða auglýsingu



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica