Hjólreiðadagur í Evrópskri samgönguviku 2003
Markmið Evrópskrar samgönguviku er að vekja almenning til umhugsunar um umferðarmenningu í víðasta skilningi. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi þess að skapa betra aðgengi, meðal annars fyrir gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og fatlaða. Tilgangurinn er að kynna stefnu og verkefni sem unnið er að í höfuðborginni, að stuðla að aukinni vitund borgarbúa um nauðsyn þess að minnka mengun af völdum umferðar, að hlúa að samstarfi við atvinnulífið og félagasamtök og að leggja áherslu á almenningssamgöngur í borginni.
Í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar efnir Reykjavíkurborg til margvíslegra viðburða, en hver dagur er helgaður tilteknu málefni sem tengist umferðarmenningu. Fimmtudagurinn 18. september er tileinkaður aðgengi fatlaðra og föstudagurinn 19. september vistakstri. Laugardagurinn 20. september er sérstakur miðborgardagur og sunnudagurinn 21. september er göngudagur í miðborginni. Þungamiðja vikunnar er Bíllausi dagurinn sem haldinn verður 22. september undir slagorðinu „Í bæinn án bílsins á virkum degi.“
Dagskrá Evrópskrar samgönguviku má nálgast á www.reykjavik.is
Nánari upplýsingar veitir:
Jóhanna B. Magnúsdóttir verkefnisstjóri Evrópskrar samgönguviku í síma 899-0378.
