hvert viltu komast...
klukkan er 00:56


Fréttir
Evrópsk samgönguvika

Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópskri samgönguviku í fyrsta sinn

16.9.2003

Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar og formaður samgöngunefndar, setti Evrópska samgönguviku 2003 í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra flutti ávarp og opnaði nýjan vef um mengunarmælingar.

Í ávarpi Árna Þórs Sigurðssonar kom fram að Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópsku samgönguvikunni í fyrsta sinn í ár og er því meðal þeirra rúmlega 250 borga víðsvegar í Evrópu sem taka þátt í verkefninu. Meginþema vikunnar að þessu sinni er „aðgengi fyrir alla“ í tengslum við Evrópuár fatlaðra.

Markmið Evrópskar samgönguviku er að vekja almenning til umhugsunar um umferðarmenningu í víðasta skilningi. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi þess að skapa betra aðgengi, meðal annars fyrir gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og fatlaða. Tilgangurinn er að kynna stefnu og verkefni sem unnið er að í höfuðborginni, að stuðla að aukinni vitund borgarbúa um nauðsyn þess að minnka mengun af völdum umferðar, að hlúa að samstarfi við atvinnulífið og félagasamtök og að leggja áherslu á almenningssamgöngur í borginni.

Ætlunin er að vekja athygli á þeim mörgu þáttum sem varða samgöngur og hversu margar leiðir eru færar þeim sem vilja efla umferðarmenningu og draga úr mengun. Á fundi heilbrigðisnefnda stórborga Norðurlandanna sem haldinn var nýverið, kom fram að í Reykjavík eru 95% heildarlosunar koltvísýrings (CO2), sem fara út í andrúmsloftið, frá bílvélum.

Í tilefni Evrópsku samgönguvikunnar efnir Reykjavíkurborg til margvíslegra viðburða, en hver dagur er helgaður tilteknu málefni sem tengist umferðarmenningu. Þriðjudagurinn 16. september er tileinkaður minni mengun í umferðinni, miðvikudagurinn 17. september er hjólreiðadagur, fimmtudagurinn 18. september er tileinkaður aðgengi fatlaðra og föstudagurinn 19. september vistakstri. Laugardagurinn 20. september er sérstakur miðborgardagur og sunnudagurinn 21. september er göngudagur í miðborginni.

Þungamiðja vikunnar er Bíllausi dagurinn sem haldinn verður 22. september undir slagorðinu „Í bæinn án bílsins á virkum degi.“ Reykjavíkurborg tekur nú þátt í bíllausa deginum í þriðja skipti og er því meðal þeirra rúmlega 900 borga og bæja sem eru þátttakendur í ár. Bíllausi dagurinn er haldinn til að hvetja fólk til að nota almenningssamgöngur eða aðra fararskjóta en einkabíl til að draga úr mengun í borginni.

Dagskrá Evrópskar samgönguviku verður dreift í öll hús á höfuðborgarsvæðinu.

Einnig má
 nálgast dagskrána á www.reykjavik.is

Nýjustu tölur um þátttakendur er að finna á www.mobilityweek-europe.org


Nánari upplýsingar veitir:
Jóhanna B. Magnúsdóttir verkefnisstjóri Evrópskrar samgönguviku í síma 899-0378.

 

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica