hvert viltu komast...
klukkan er 00:24


Fréttir
Mynd 1 af 2
1 2

Evrópsk samgönguvika 2003 – aðgengi fyrir alla

9.9.2003

Samgönguvikan er haldin til þess að vekja almenning til umhugsunar um umferðarmenningu. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi þess að skapa betra aðgengi, meðal annars fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Í tilefni samgönguvikunnar efnir Reykjavíkurborg til margvíslegra viðburða, en hver dagur verður helgaður tilteknu málefni sem tengist umferðarmenningu. Með því er ætlunin að vekja athygli á þeim mörgu þáttum sem varða samgöngur og hversu margar leiðir eru færar þeim sem vilja efla umferðarmenningu og draga úr mengun. Evrópska samgönguvikan var fyrst haldin árið 2002 en hún á rætur að rekja til Bíllausa dagsins en hann var fyrst haldinn í Frakklandi árið 1998. Bíllausi dagurinn er haldinn til að hvetja fólk til að nota almenningssamgöngur eða annan fararmáta en einkabíl, til að draga úr mengun í borginni. Reykjavíkurborg tekur nú þátt í Bíllausa deginum í fjórða skipti og er því meðal þeirra 657 borga og bæja sem taka þátt í ár.

Evrópsku samgönguvikunni er ætlað að vekja athygli á hinum ýmsu hliðum borgarumferðar, bæði því jákvæða og því sem betur má fara, á líflegan og skemmtilegan hátt en meginmarkmiðið er að minnka mengun í borgum. Þungamiðja vikunnar verður Bíllausi dagurinn sem haldinn verður 22. september undir slagorðinu „Í bæinn án bílsins á virkum degi.“

Dagskrá Evrópskrar samgönguviku 2003 verður nánar auglýst síðar.

Sjá einnig mobilityweek-europe.org

Senda grein



Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica