klukkan er 09:39


Fréttir

Norðurlandameistarar!

Keppnislið Strætó bs. vann titilinn annað árið í röð

11.8.2003

Ár hvert reyna strætisvagnabílstjórar á Norðurlöndum með sér í ökuleikni á atvinnutækjum sínum.  Að þessu sinni fór keppnin fram í Svíþjóð, og var haldin þ. 9. ágúst s.l.  Lið Strætó bs., sem vann Norðurlandameistaratitill í fyrra, átti því titil að verja.  Keppnisliðið var það sama í ár og í fyrra, en það var eigi að síður valið að undangenginni forkeppni hér heima fyrr í sumar. 

Leikar fóru svo að liðinu tókst að verja titilinn, með því að sigra keppnina annað árið í röð.  Finnska keppnisliðið gerði harða hríð að liði Strætó bs., svo keppnin var geysi hörð og spennandi.  Reynsluboltarnir í liði Strætó bs. höfðu að lokum betur, og unnu sannfærandi sigur. 

Í keppni einstaklinga náði Þórarinn Söebech bestum árangri íslensku keppendanna, en hann hafnaði í þriðja sæti.

Við hjá Strætó bs. erum stoltir af okkar mönnum og árangri þeirra, og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.  Þeir eru fyrirtæki sínu til sóma!

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica