Ráðgjafinn gefur ráð um ferðir strætó
Í byrjun júní var opnað nýtt vefsvæði Strætó bs. undir heitinu www.bus.is í þeim tilgangi að veita almenningi aukna þjónustu og upplýsingar m.a um ferðir strætisvagnanna. Markmið vefsvæðisins eru m.a. að auka upplýsingaflæði til og frá fyrirtækinu og auka markaðshlutdeild Strætó bs.
Meðal nýjunga í þeirri viðleitni er Ráðgjafinn, gagnvirkt upplýsingakerfi, sem veitir m.a. upplýsingar um áfangastaði Strætó bs. og hvernig best hentar að komast milli staða á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðgjafinn gefur notendum strætó ráð varðandi hentugustu leið hverju sinni milli áfangastaða strætó. Notandinn skráir m.a. brottfarar- og áfangastað, ákjósanlegan komutíma, hvenær ferðin verður farin og fleira slíkt en að því búnu sýnir Ráðgjafinn þær leiðir sem helst koma til greina. Sé um fleiri en eina leið að velja birtist sú heppilegasta efst en aðrar þar fyrir neðan. Farþeginn fær þannig góða yfirsýn yfir hvað honum stendur til boða áður en haldið er af stað.
Ráðgjafinn gefur t.d. til kynna hvaða leið tiltekinn vagn fer, mögulega tengivagna og hversu langan tíma ferðin ætti að taka þótt gera þurfi ráð fyrir einhverjum skekkjumörkum í því efni. Þar sem fleiri en ein biðstöð eru við tiltekna götu þarf að gæta þess að taka fram húsnúmer bæði á brottfarar- og áfangastað þar sem fleiri en ein leið gætu komið til greina.
Ráðgjafinn þykir hafa reynst vel þótt nokkrir ágallar hafi komið í ljós í forritinu en kerfið er enn í þróun og allt kapp lagt á að lagfæra þá annmarka sem vart verður. Strætó bs. er byggðasamlag í eigu sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en hlutverk þess er að sinna almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Markmið þess er að efla almenningssamgöngur, bæta þjónustu og auka hagkvæmni. Fyrirtækið rekur almenningsvagnaþjónustu á svæðinu með einu leiðakerfi og einni gjaldskrá og leitar hagkvæmustu leiða í rekstri og þjónustu hverju sinni. Fyrirtækið hefur jafnframt umsjón með ferðaþjónustu fatlaðra.
