Fréttir
Verðlaun í Sumarleik Strætó veitt í Nauthólsvíkinni
Strætó bs. bauð þátttakendum í sumarleik Strætó til sumargleði á Ylströndinni í Nauthólsvík, laugardaginn 19. júlí. Þar var mikið um dýrðir enda veður með afbrigðum gott. Fólk á öllum aldri naut blíðunnar.Pétur Fenger, aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó bs., bauð viðstadda velkomna og sagði í stuttu máli frá bus.is og Sumarleik Strætó. Þær Þóra Karítas og Maríkó Margrét úr Hjartslætti á Skjá einum veittu heppnum þátttakendum úr sumarleiknum verðlaun. Einn fékk ferð fyrir tvo til Kulusuk í Grænlandi og annar skoðunarferð fyrir tvo um Kárahnjúkasvæðið með Flugfélagi Íslands. Sex þátttakendur fengu rauð kort með strætó og fimm vinningshafar fengu tvo miða á söngleikinn Grease.Þeir Jónsi, Jói og Gói úr söngleiknum Grease í Borgarleikhúsinu komu svo á svæðið og sungu nokkur lög úr söngleiknum Grease í Borgarleikhúsinu.
Tveir fræknir strætóbílstjórar grilluðu SS pylsur ofan í gestina en þorstanum var svalað með Appelsíni og Pepsi frá Ölgerðinni.
Strætó bs. þakkar Flugfélagi Íslands, Skjá einum og Grease fyrir samstarfið í tengslum við sumarleikinn.
Nöfn vinningshafa:
Rauð kort með Strætó bs. hljóta:
- Ása Baldursdóttir
- Birna Björnsdóttir
- Jóhanna Þórný Bergsdóttir
- Pétur Árnason
- Ragna Gestsdóttir
- Sigríður Michelsen
Miða fyrir tvo á söngleikinn Grease hljóta:
- Emilíana Birta Hjartardóttir
- Erla Óskarsdóttir
- Haukur Júlíus Arnarson
- Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
- Sólveig Jóhanna Jónsdóttir
Ferð til Kulusuk fyrir tvo með Flugfélagi Íslands hlýtur:
- Sigríður Klara Böðvarsdóttir
Skoðunarferð fyrir tvo um Kárahnjúka með Flugfélagi Íslands hlýtur:
- Úlfar Björnsson
