klukkan er 09:00


Fréttir

Sumargleði Strætó bs. á Ylströndinni í Nauthólsvík

18.7.2003

Strætó bs. býður þátttakendum í sumarleik Strætó til sumargleði á Ylströndinni í Nauthólsvík, laugardaginn 19. júlí kl. 14.

Þóra Karítas og Maríkó Margrét úr Hjartslætti á Skjá einum munu veita heppnum þátttakendum úr sumarleiknum verðlaun. Einn fær ferð fyrir tvo til Kulusuk í Grænlandi og annar fær skoðunarferð fyrir tvo um Kárahnjúkasvæðið með Flugfélagi Íslands. Sex heppnir fá rauð kort með strætó.

Jónsi, Jói og Gói úr söngleiknum Grease í Borgarleikhúsinu mæta á svæðið og taka lagið. Þeir munu afhenda fimm heppnum vinningshöfum tvo miða á Grease.

Svellkalt Appelsín og Pepsi frá Ölgerðinni og grillaðar SS pylsur í boði.

 

Senda grein


Þjónustusími strætó 540 2700
Þetta vefsvæði byggir á Eplica